Salatbarinn
Vélasalan

Úrslitin ráðast í A-riðli Reykjavíkurmótsins

Keppni lýkur í riðlakeppni Reykjavíkurmótsins í fótbolta með tveimur leikjum í dag og verða þeir báðir í beinni útsendingu hér á SportTV.is. Klukkan 15 mætast Leiknir og Fram en Fram hefur þegar tryggt sæti sitt í undanúrslitum og Leiknir getur fylgt þeim þangað með sigri. Klukkan 17 mætast KR og ÍR en KR þarf að sigra og treysta á að Leiknir tapi stigum gegn Fram til að eiga möguleika á að mæta Fylki í undanúrslitum keppninnar en Fylkir og Þróttur tryggðu sæti sín í undanúrslitum á fimmtudagskvöldið.

Næstu útsendingar

Tæknivík