Lesa frétt

4.9.2010

Úrslitadagur Ragnarsmótsins

Í gærkvöld varð ljóst hvaða lið mætast í dag, á úrslitadegir Ragnarsmótsins í handbolta. FH og Valur leika um fimmta sætið klukkan 12:00. Strax að þeim leik loknum eða klukkan 14:00 eigast við HK og Fram í leiknum um þriðja sætið en klukkan 16:00 hefst úrslitaleikur Hauka og Selfoss. Allir leikirnir verða í beinni útsendingu og ólíkt hinum leikjum mótsins mun þulur lýsa því sem fyrir augum ber í dag frá Selfossi.

Dagskrá dagsins:
12:00 FH - Valur
14:00 HK - Fram
16:00 Haukar - Selfoss

Að lokum er rétt að minna á Evrópuleikinn á Hlíðarenda annað kvöld klukkan 20:00 þar sem Íslandsmeistarar Vals í kvennaflokki fá Iuventa frá Slóavkíu í heimsón í EHF-bikarkeppninni. Um er að ræða fyrri leik liðanna en seinni leikurinn verður leikinn í Michalovce í Slóvakíu laugardaginn 11. september en mikil veisla býður Vals ef liðið kemst áfram því sigurvegarinn mætir þýska liðinu Vfl Oldenburg í annarri umferð.