5.9.2010
Evrópuleikur Vals í beinni í kvöld
Valur tekur á móti Iuventa frá Slóvakíu í fyrri leik liðanna í fyrstu umferð EHF-bikarkeppni kvenna klukkan 20:00 í kvöld í beinni útsendingu hér á SportTV.is. Útsending hefst um tíu mínútum fyrir leik.
Iuventa er eitt af bestu liðum Slóvakíu en liðið lagði Stjörnuna að velli í forkeppni Meistaradeildarinnar 2006, í riðli sem leikinn var í Ungverjalandi. Valur varð Íslandsmeistari á síðustu leiktíð og er með mjög öflugt lið en liðið þarf á öflugum stuðningi áhorfenda í leiknum í kvöld. Við viljum því hvetja alla til að mæta á völlinn en þeir sem eiga sér ekki fært að fara á Hlíðarenda geta séð leikinn hér á SportTV.
Seinni leikurinn fer fram á laugardaginn í Michalovce í Slóvakíu en sigurvegari einvígisins mætir þýska liðinu Vfl Oldenburg. Það er því til mikils að vinna.