Leikið verður til úrslita í Meistaradeildinni í körfubolta í dag í beinni útsendingu hér á SportTV.is. Klukkan 15 mætast Panathinaikos og Barcelona í leiknum um þriðja sætið og klukkan 18 er það úrslitaleikurinn á milli Olympiacos og CSKA Moskva. Hágæða körfubolti sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.