09.mar. 2010 - 15:01
Við viljum benda áhorfendum SportTV.is á að stórleikur FH og Hauka í N1 deildinni í handbolta verður í beinni útsendingu á fimmtudagskvöldið frá klukkan 19:30. Leikurinn er einn allra stærsti leikur ársins í deildinni og því hefur verið unnið hörðum höndum að því að bæta leiknum við dagskránna á fimmtudagskvöldið.